top of page

Um nuddarann

   Ég heiti Sara Kristjánsdóttir og er fædd 1986. Ég brautskráðist af lista- og hönnunarbraut úr Iðnskólanum í Hafnarfirði árið 2006. Nokkrum árum seinna kláraði ég viðbótarnám til stúdentsprófs af listabraut úr Fjölbrautarskólanum í Garðabæ (2009). Þá fór ég strax að læra heilsunudd og ég útskrifaðist úr Heilbrigðisskólanum í Ármúla jólin 2012 af heilsunuddbraut sem heilsunuddari. Ég hef starfað við heilsunudd bæði í Laugum Spa í World Class og svo var ég áður með aðstöðu í húsnæði Fiskveiðihlutafélagsins Venus í Hafnarfirði þar sem ég starfaði sjálfstætt.

   Nú er ég komin með nýja aðstöðu í Hafnarfirði og er hún í verslunarmiðstöðinni Firði í suðurturninum á 6. hæð.

   Ég er rosalega ánægð með þetta yndislega starf sem nuddari og ég hef fundið sjálfa mig í því. Verið hjartanlega velkomin til mín í heilsunudd.

bottom of page